Íslenska sjávarútvegs - og fiskeldissýningin & ráðstefnan fagnar því að Vónin í Færeyjum, dótturfyrirtæki Hampiðjunnar, sýnir að nýju á IceFish og gleðst einnig vegna góðra fregna af Twister-trollhlerunum sem það framleiðir.
Bjørn Sævik, skipstjóri norska uppsjávarskipins Kings Bay, valdi nýlega Twister-toghlerana frá Vónin fyrir skip sitt. Bjørn hefur staðið skipstjóravaktina í 35 ár og þekkir því af eigin raun þróun veiðifæra og tæknibúnaðar í atvinnuveiðum seinustu áratugi.
Skipið Kings Bay er gert út frá Ålesund og hefur lengi stundað veiði á síld, makríl og kolmunna. Í vor sem leið voru Twister-toghlerar frá Vónin teknir í notkun í skipinu, sem markar umskipti yfir í virka stýrivélatækni þar um borð.
„Við vorum líklega meðal þeirra síðustu til að skipta yfir í toghlera með virku stýringarkerfi – að minnsta kosti á þessum slóðum,“ segir Bjørn. „Við skoðuðum verð, styrkleika og meðmæli frá öðrum skipstjórum og útgerðum, og komust að þeirri ótvíræðu niðurstöðu að lokum að Twister-toghlerarnir væru rétti kosturinn.“
Twister-toghlerarnir hafa þegar sannað gildi sitt með því viðhalda jafnri og góðri frammistöðu við krefjandi aðstæður og mismundandi siglingarlag, sem er lykilþáttur í uppsjávarveiðum. Þær veiðar kalla oft á tíðar breytingar á siglingarstefnu á meðan dregið er, og margar hefðbundnir hlerar eiga erfitt með að viðhalda stöðugleika þegar beygt er þvers og kruss. Twister-toghlerarnir hafa hins vegar reynst vera byltingarkenndir við slíkar aðstæður.
„Miðað við það sem við eigum að venjast er það sannarlega risastökk að geta stýrt toghlerunum,” segir Bjørn. „Twister-hlerarnir virka fullkomlega.”
Möguleikarnir á að viðhalda og stýra stöðu hleranna á bæði miklu dýpi og breiðu svæði, jafnvel í kröppum beygjum, hefur auðveldað veiðarnar til muna og aukið fyrirsjáanleika þeirra. Fyrir vikið eykst ekki aðeins hagkvæmnin heldur minnkar einnig álagið á bæði veiðafæri og áhöfnina.
Fyrir utan frammistöðu toghleranna við veiðar hefur einfaldleikinn við notkun þeirra kætt mjög áhöfnina á Kings Bay. Toghlerarnir eru þjálir í notkun og þó að skipverjar séu enn að tileinka sér ýmsa þætti við þessa nýjung, hafa þeir verið fljótir að aðlagast nýja kerfinu. Bjørn leggur áherslu á að hinn raunverulegi prófsteinn á gæði hleranna sé þó endingartími þeirra, en til þessa sé reynslan af notkun þeirra og getu afskaplega góð.
„Það er jafn mikilvægt að þeir virki í hvert skipti sem maður dregur og að þeir virki þegar þeir eiga að virka,” segir hann.
Bjørn skipstjóri er sannfærður um að Twister-toghlerarnir frá Vónin muni halda áfram að skila fyrirtaks árangri. Samspil stýrihæfni, einfaldleika, snjallrar hönnunar og sterkrar smíði hefur þegar vakið hrifningu hjá skipstjóra, áhöfn og útgerð Kings Bay. Og nú þegar ótal fleiri veiðiferðir eru framundan, oft við óblíð skilyrði, er skipstjórinn og skipverjar orðnir vel í stakk búnir til að nýta sér tæknina til fulls.
„Algjörlega. Enginn vafi á því,“ segir Bjørn. „Það er ekki hægt að líkja Twister-toghlerunum við þá hefðbundna hlera sem við þekkjum.”
Hafið samband við sales@icefish.is til að fá frekari upplýsingar um að sýna á IceFish 2026.

